Heilbrigðiseftirlit Austurlands er rekið af sveitarfélögum skv. lögum nr. 7/1998 m.s.br. um hollustuhætti og mengunarvarnir. Árið 1998 gerðu sveitarfélögin á Austurlandi með sér samning um að reka Heilbrigðiseftirlit Austurlands sem byggðasamlag.
Heilbrigðiseftirlit Austurlands starfar í umboði Heilbrigðisnefndar Austurlands. Hlutverk heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga er m.a. að gefa út starfsleyfi og hafa eftirlit með starfsemi starfsleyfisskyldra fyrirtækja skv. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og skv. matvælalögum.
Meðal verkefna HAUST er eftirlit með vatnsveitum sem fer meðal annars fram með sýnatöku og má sjá niðurstöður fyrir vatnssýni úr stærri vatnsveitum hér til hliðar.