Heilbrigðisnefndarmenn viðstaddir:
Valdimar O. Hermannsson, Árni Kristinsson, Andrés Skúlason, Sigurlaug Gissurardóttir, Benedikt Jóhannsson, Eiður Ragnarsson og Ólafur Hr. Sigurðsson. .
Starfsmenn viðstaddir:
Helga Hreinsdóttir, Leifur Þorkelsson
Dagskrá:
- Fundur formanna og framkvæmdastjóra HAUST 22.11.2013. 675
- Stjórnsýslukærur 676
2.1 Málefni hunds í Neskaupstað 676
2.2 Gámaþjónusta Austurlands – Sjónarás ehf. 676 - Málefni einstakra fyrirtækja og fyrirtækjaflokka 676
3.1 Brennur 676
3.2 Fyrrum Alþýðuskólinn á Eiðum, umsókn um starfsleyfi fyrir þorrablót 676
3.3 Sundlagin í Selárdal Vopnafirði 677 - Samningur við UST um eftirlit með urðunarstöðum og spilliefnamóttöku 677
- Af vettvangi SHÍ 677
5.1 Samráðsfundir framkvæmdastjóra HES 677
5.2 Stjórnarfundur SHÍ haldinn 13.12.2013 677 - ESA fundir 2.-5.12.2013 678
- Erindi frá MAST 678
- Sýnatökur vatnsveitna. 679
8.1 Sýni af neysluvatni, sýnatökuáætlun 679
8.2 Eskifjörður - vatnsveita 679
8.3 Heildarsýni hjá litlum vatnsveitum 679 - Árið 2013 – 679
- Bókuð útgefin starfsleyfi 680
- Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi 683
- Önnur mál 683
12.1 Námskeið og fundir 683 - Næstu fundir 683
1 Fundur formanna og framkvæmdastjóra HAUST 22.11.2013
Formaður, varaformaður og framkvæmdastjóri funduðu vegna mála sem upp komu milli funda. Þetta var gert skv. ákvörðun heilbrigðisnefndar um verklag milli funda, þ.e.
- Framkvæmdanefnd. Formaður og varaformaður ásamt frkvstj. mynda n.k. framkvæmdanefnd. Ef þessir aðilar eru sammála um afgreiðslu mála, þá hafa þeir umboð til afgreiðslu. Ef þeir eru ekki sammála eða ef mál eru þannig vaxin að alla nefndina þurfi til, þá hefur verið kallað til símfunda.
Minnispunktar af fundinum lagðir fram til kynningar og staðfestingar.
Heilbrigðisnefnd staðfestir ákvarðanir sem teknar voru á fundinum.
2 Stjórnsýslukærur
2.1 Málefni hunds í Neskaupstað.
Kæruefnum stjórnsýslukæru vegna afskipta HAUST af málefnum hunds í Neskaupstað var svarað innan tilskilins tíma. Úrskurður hefur ekki borist
2.2 Gámaþjónusta Austurlands - Sjónarás ehf.
Borist hefur stjórnsýslukæra vegna útgáfu breytts starfsleyfis fyrir Gámaþjónustu Austurlands að Hafnarbraut 6 á Reyðarfirði. HAUST hefur sent kærunefndinni greinargerð til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri.
Málin kynnt án bókunar.
3 Málefni einstakra fyrirtækja og fyrirtækjaflokka
Eftirlit með áramótabrennum hefur verið viðhaft annað hvert ár að jafnaði. Frá því að brennur voru gerðar starfsleyfisskyldar og reglubundið eftirlit hófst hafa orðið stakkaskipti á bálköstunum. Mikil viðhorfsbreyting hefur orðið í samfélaginu og menn líta ekki lengur á brennur sem leið til sorpförgunar. Vegna þessa leggja starfsmenn HAUST fram eftirfarandi tillögu að breytingu:
Hafi brennur/bálkestir verið án athugasemda þrjár eftirlitsferðir í röð verði eftirlitsferðum fækkað, það verði handahófskennt og óreglulegt en eftirlitsgjald lækkað. Hafi þurft að gera athugasemdir við efni sem sett eru á brennuna eða skort á frágangi svæðis eftir brennu í seinustu þrem eftirlitsferðum verði reglubundið eftirlit áfram annað hvert ár og eftirfylgniferðir gjaldteknar skv. gjaldskrá.
Heilbrigðisnefnd samþykkir ofangreinda tillögu starfsmanna og felur þeim að fara yfir eftirlitsgögn fyrir brennur. Í kjölfarið verði starfsleyfishöfum brenna sent bréf með tilkynningu um breytta eftirlitstíðni og flokkun eftir því sem við á fyrir hverja brennu.
3.2 Fyrrum Alþýðuskólinn á Eiðum, umsókn um starfsleyfi fyrir þorrablót
Borist hefur umsókn um tímabundið starfsleyfi fyrir Þorrablót í húsnæði fyrrum Alþýðuskólans á Eiðum.
Engar úrbætur hafa verið gerðar á fráveitumálum aðstöðunnar frá því að heilbrigðisnefnd tók eftirfarandi ákvörðun á fundi Heilbrigðisnefndar þann 2.2. 2012.
Nefndin ítrekar að ekki verði gefin út starfsleyfi fyrir samfellda starfsemi í húsnæði fyrrv. Alþýðuskólans á Eiðum með miklu álagi á fráveitukerfið fyrr en fráveitumál verði komin í viðunandi horf.
Þar sem um tímabundna starfsemi er að ræða og í mjög skamman tíma samþykkir Heilbrigðinefnd starfsleyfisútgáfu með sömu kröfum og leyfi var veitt í september 2013, þ.e.
- Rotþró sem tekur við fráveitu frá aðstöðunni verði tæmd í vikunni fyrir samkomuna af aðila sem hefur starfsleyfi Heilbrigðisnefndar til slíkra verka.
- Skrifleg staðfesting á að rotþróin hafi verið tæmd skal send skrifstofu HAUST þegar hreinsun hefur farið fram.
Sigurlaug mætir til fundar kl. 9:35
3.3. Sundlaugin í Selárdal Vopnafirði
Erindi dags. 6.1.2014 barst frá Umhverfis- og auðlindaráðuneyti þar sem óskað er umsagnar um beiðni Vopnafjarðarhrepps um að mega starfrækja sundlaugina í Selárdal án starfsleyfis á meðan lokið er framkvæmdum til að tryggja heilnæmi baðvatnsins:
Heilbrigðisnefnd fagnar þeim framkvæmdum sem unnið er að við sundlaugina í Selárdal en telur að sundlaugin þurfi að uppfylla skilyrði sem gera ber til sundlauga. Nefndin mun gefa út starfsleyfi um leið og staðfest er að skilyrðum sé mætt og umsókn berst.
4. Samningur við UST um eftirlit með urðunarstöðum og spilliefnamóttöku
Í lok október var gengið frá samningi milli Heilbrigðiseftirlits og Umhverfisstofnunar um að HAUST fari áfram með reglubundið eftirlit með urðunarstöðum og spilliefnamóttökum á starfssvæði HAUST næstu tvö árin. Eftirlitið verður með svipuðu sniði og verið hefur, en vinna við skýrslugerð breytist nokkuð. Form gjaldtöku breytist þannig að í stað þess að HAUST innheimti eftirlitsgjald frá starfsleyfishöfum (sveitarfélögum í flestum tilfellum) skv. sinni gjaldskrá mun HAUST hér eftir innheimta gjaldið af Umhverfisstofnun, sem síðan innheimtir gjald af starfsleyfishöfum skv. sinni gjaldskrá. Kostnaður rekstaraðila vegna eftirlitsins mun hækka frá því sem verið hefur.
Dæmi um mismun á gjaldtöku:
|
gjaldskrá HAUST 2014 |
Gjaldskrá UST 2013 |
|
|
Urðunarstaðir í flokki 2 |
152.080 |
313.600 |
|
Urðunarstaðir í flokki 3 |
124.080 |
212.800 |
BJ leggur fram eftirfarandi bókun: Tel rétt að vekja athygli á mismun í gjaldskrám og kanna hvernig hann verður til.
5 Af vettvangi SHÍ
5.1 Samráðsfundir framkvæmdastjóra HES.
a) Fundurinn var haldinn 19.11.2013 á Egilsstöðum.
HHr greini frá nokkrum meginatriðum fundarins, en á honum var rætt um ýmis mál til að samræma aðferðafræði, eyðublöð og vinnubrögð heilbrigðiseftirlitssvæðanna.
b) Símfundur framkvæmdastjóra haldinn 29.11.2013
Fundurinn var haldinn m.a. til að undirbúa fundaviku sem MAST hafði boðað vegna komu ESA 2.-5.12.2013. Heilbrigðiseftirlitssvæðin skiptu á sig verkum varðandi fundarsetu o.þ.h.
c) Símfundur framkvæmastjóra haldinn 18.12.2013
Fundurinn var m.a. haldinn til að ræða um tilboð MAST til HES um afnot af eftirlitskerfinu ÍsLeyfi, sjá lið 7. Einnig var rætt um aðferðafræði við að svara erindum ESA t.d. um svokallaðan Country Profile.
5.2 Stjórnarfundur SHÍ haldinn 13.12.2013
Til fundarins var boðið Þorsteini Víglundssyni framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins og með honum mætti og Pétur Reimarsson, forstöðumaður. Rætt var um stefnu stjórnvalda um einföldun eftirlits. Einnig var rætt um áformaða breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunareftirlit o.fl.
Heilbrigðisnefnd fagnar góðri samvinnu heilbrigðiseftirlitssvæðanna og hvetur til samræmingar í störfum heilbrigðiseftirlits eftir því sem unnt er.
6. ESA fundir 2.-5.12.2013
ESA boðaði MAST og heilbrigðiseftirlitssvæðin til funda vikuna 2.-5.12. í því skyni að fara samræmt yfir 10 úttektir á matvælaeftirliti á Íslandi sem gerðar hafa verið frá árinu 2010. Aðeins ein af þessum úttektum fór að hluta til fram á Austurlandi og ekki allar úttektirnar snerta heilbrigðiseftirlit, en nánast allar úttektirnar koma að hluta til inn á samhæfingu MAST og heilbrigðiseftirlits. HHr sat upphafsfundinn á Selfossi þar sem málin voru kynnt, síðan sátu HHr og LÞ nokkra fundi á þriðjud. og miðvikud. símleiðis, þ.e. þá fundi sem snertu heilbrigðiseftirlitið. Síðan sátu bæði HHr og LÞ lokafundinn símleiðis.
Ljóst er að heilbrigðiseftirlitssvæðin hafa ekki tekið þátt í vinnu við þessar úttektir eins og þeim ber skv. lögum og reglugerðum. Í framtíðinni verður að áætla tíma í lestur gagna, skýrslugerðir og fundasetu vegna úttektanna í mun meira mæli en gert hefur verið.
7. Erindi frá MAST
Á fundi sem Jón Gíslason forstjóri MAST boðaði til þann 6.12.2013 lagði hann fram tilboð um að heilbrigðisnefndir taki upp ÍsLeyf, tölvukerfi sem MAST hefur látið hanna til að halda utan um eftirlitskerfi sitt. Kostnaður fyrir hvert heilbrigðiseftirlitssvæði yrði kr. 560 þús á árinu 2014 og annað eins 2015. Eftir það kæmi til hýsingarkostnaður ca. 7.000 kr/mán.
Kerfið myndi auðvelda utanumhald og samræmingu matvælaeftirlits í landinu en á hinn bóginn þyrfti þá að leysa utanumhald um mengunar- og hollustuháttaeftirlit sem og eftirlits-, gjaldskrár- og áætlanagerð sem undanfarin ár hefur allt verið geymt og unnið í einni stórri excel-skrá hjá HAUST
Erindið hefur verið ítrekað og MAST óskar eftir svari frá Heilbrigðisnefndum ekki síðar en á fundi sem MAST boðar með framkvæmdastjórum Heilbrigðiseftirlitssvæða og formönnum heilbrigðisnefnda þann 21. febrúar 2014.
Tilboðið hefur verið borið undir lögfræðing hjá Sambandi sveitarfélaga og er þar í áframhaldandi skoðun.
Málið rætt:
LÞ gerir grein fyrir við vinnu við áhættugreiningu í matvælaeftirliti sem MAST hefur leitt í samstarfi við heilbrigðiseftirlitssvæðin. Nú er einnig unnið að samræmdri eftirlitshandbók og er sú vinna langt komin. Með gagnafærslum í ÍsLeyf eru þessi tvö tæki mun auðveldari í notkun og stuðla að meiri einsleitni og samræmingu í eftirliti.
HH telur mikilvægt að endanleg ákvörðun verði tekin í samvinnu allra heilbrigðiseftirlitssvæðanna og munu framkvæmdastjórar funda ummálið í á næstu dögum.
BJ hefur reynslu af vinnu MAST skv. áhættugreiningu og eftirlitshandbók í sínu starfi og hvetur til að HAUST taki skráningarkerfið upp í tilraunaskyni. Hann telur einnig að notkun sama skráningarkerfis og MAST notar auki líkur á framsalsverkefnum frá stofnuninni til HAUST.
Heilbrigðisnefnd Austurlands er jákvæð á að taka tilboði MAST og vill gjarnan að HAUST prufukeyri skráningarkerfið ÍsLeyf f.h. heilbrigðiseftirlitssvæðanna.
8. Sýnatökur vatnsveitna
8.1 Sýni af neysluvatni, sýnatökuáætlun
Tillaga er um að sýni af neysluvatni verði eins og undanfarin ár, þ.e. að reglubundin neysluvatnssýni verið tekið eftir ákvæðum töflu 6 í neysluvatnsreglugerðar út frá fjölda neytenda á vatnsveitunni og gjald vegna þessa innheimt með eftirlitsgjaldi. Heildarsýni verði tekin skv. ákvæðum reglugerðarinnar hjá stóru vatnsveitunum og kostnaður vegna þeirra innheimtur þegar upphæð gjalds frá rannsóknastofum liggur fyrir.
Tafla 6. Lágmarkstíðni greininga.
|
ÍBÚAFJÖLDI Á VEITUSVÆÐI |
REGLUBUNDIÐ EFTIRLIT |
HEILDARÚTTEKT |
|
Færri en 150 |
1/2 (6) |
Ákvörðun heilbrigðisnefndar í samráði við Hollustuvernd ríkisins |
|
151 – 500 |
1 |
Ákvörðun heilbrigðisnefndar í samráði við Hollustuvernd ríkisins |
|
501 – 1 000 |
4 |
1 |
|
1 001 – 5 000 |
4 |
1 |
|
5 001 – 10 000 |
7 |
1 |
8.2 Eskifjörður - vatnsveita
Í desember 2012 var í samvinnu við Fjarðabyggð og í kjölfar neysluvatnsmengunar á Eskifirði ákveðið að fjölga neysluvatnssýnum úr 4 á ári, sem er skv. ákvæðum neysluvatnsreglugerðar í 8 vegna viðkvæmra vatnstökustaða. Síðan þá hefur UV-geislun verði sett á neysluvatnið og gæði skv. sýnatökum eru trygg. Því er hér með lagt til að sýnum veðri aftur fækkað í 4 á ári.
8.3 Heildarsýni hjá litlum vatnsveitum
Í úttekt ESA á neysluvatni var gerð alvarleg aths. við að ekki væru tekin heildarsýni af litlum vatnsveitum. Í neysluvatnsreglugerð segir að heildarsýni skuli tekin skv. ákvörðun heilbrigðisnefndar í samráði við Matvælastofnun, áður Hollustuvernd ríkisins. Túlkun ESA er að Heilbrigðisnefnd geti ekki ákveðið að taka ekki heildarsýni, en að hún geti ákveðið að taka t.d. eitt sýni. Nú er unnið að því að fá samþykki fyrir að nýta vinnu í vatnasvæðanefndunum þar sem vatnshlot eru skilgreind (n.k. vatnasvæði) í þeim tilgangi að geta tekið heildarsýni úr litlum vatnsveitum sem væru þá dæmigerðar fyrir litlar vatnsveitur á svipuðum slóðum. Með þessu er vonast til að spara mikið fé, en útfærslan verður ekki einföld.
Ofangreint allt lagt til kynningar . Tillögur skv. liðun 8.1 og 8.2. samþykktar.
9 Árið 2013 –
Staðan í árslok 2013 hefur lítillega verið skoðuð: Fjárhagur virðist hafa verið innan marka fjárhagsáætlunar, sértekjur voru allmiklar. Eftirlits- og sýnatökuáætlanir stóðust nokkurn veginn.
Heilbrigðisnefnd óskar eftir að fá sendar lykiltölur úr bókhaldi um leið og bráðabirgðauppgjör liggur fyrir.
Sigurlaug víkur af fundi kl. 10:10
10 Bókuð útgefin starfsleyfi
690 Vopnafjarðarhreppur
a) Vopnafjarðarhreppur, kt. 710269-5569. Breyting á starfsleyfi lyfsölunnar á Vopnafirði. Felldur er niður sá hluti fyrra leyfis sem náði til sölu efna- og snyrtivöru skv. efnalögum nr. 61/2013, en eftir stendur starfsleyfi vegna sölu innpakkaðar matvæla, s.s. fæðubótarefna. Leyfi útgefið 1.1.2014.
b) Þorrablótsnefnd Vopnafjarðar, kt. 710269-5569. Tímabundið starfsleyfi fyrir Þorrablót í Félagsheimilinu Miklagarði þann 25.1.2014. Ábyrgðarmaður: Sigríður Elva Konráðsdóttir, kt. 160764-3259. Leyfið útgefið 7.1.2014.
700-701 Fljótsdalshérað
c) Fljótsdalshérað, kt. 481004-3220. Starfsleyfi/endurnýjun fyrir íþróttahús með móttökueldhúsi, í fjölnotahúsi Fellabæjar. Leyfið útgefið 21.11.2013.
d) Rafey ehf., kt. 440789-5529. Breyting á starfsleyfi fyrir bílaverkstæði, vélaverkstæði og rafvélaverkstæði að Miðási 11. Leyfi útgefið 28.11.2013 með gildistíma til 30.6.2014 og með kröfu um að á starfsleyfistímanum verði ákvæðum starfsleyfisskilyrða að fullu mætt.
e) Vélaverkstæði Lolla ehf., kt. 670709-1670. Nýtt starfsleyfi vegna sápuframleiðslu í Útgarði, fyrrum mötuneyti á Eiðum. Ábyrgðarmaður: Lilja Sigurðardóttir, kt. 060184-3809. Leyfi útgefið 1.12.2013 með gildistíma til 31.12.2017.
f) Gróðrarstöðin Barri ehf., kt. 580190-1469. Starfsleyfi/tímabundið vegna jólamarkaðar, Jólakötturinn í Barra laugardaginn 14.12. frá kl. 13-16. Leyfið útgefið 3.12.2013.
g) Rafteymi ehf., kt. 410905-0780. Endurnýjun og breyting á starfsleyfi fyrir raftækjaverkstæði að Lyngás 12, 700 Egilsstaðir. Ábyrgðarmaður: Guðmundur Albertsson, kt. 080482-3539. Leyfi útgefið 12.12.2013.
h) Fljótsdalshérað, kt. 481004-3220. Breyting á starfsleyfi fyrir áhaldahús og aðstöðu fyrir gæludýrageymslu að Tjarnarási 9, 700 Egilsstaðir. Leyfi útgefið 12.12.2013.
i) Glussi ehf., kt. 490811-0950. Nýtt starfsleyfi fyrir aðstöðu til viðgerða á vökvakerfum að Miðvangi 37, austurhluti kjallara. Ábyrgðarmaður: Fannar Elísson. Leyfi útgefið 17.12.2013.
j) Lyfja hf., kt. 531095-2279. Breyting á starfsleyfi Lyfju hf. Kaupvangi 6, Egilsstöðum. Felldur er niður sá hluti fyrra leyfis sem náði til sölu efna- og snyrtivöru skv. efnalögum nr. 61/2013, en eftir stendur starfsleyfi vegna sölu innpakkaðar matvæla, s.s. fæðubótarefna. Leyfi útgefið 1.1.2014.
k) Guðlaugur Sæbjörnsson, kt. 130660-5179, tímabundið starfsleyfi vegna Þorrablóts Fellamanna í íþróttahúsinu Fellabæ, 1.2.2014. Leyfið útgefið 2.1.2014.
l) Þorrablótsnefnd Egilsstaða, kt. 461212-0420. Tímabundið starfsleyfi vegna Þorrablóts í Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum þann 24.1.2014. Ábyrgðarmaður: Jens Hilmarsson, kt. 200365-5429. Leyfið útgefið 7.1.2014
m) Aðalsteinn Jónsson kt. 121052-4079 fh. Þorrablótsnefndar Jökuldælinga-og Hlíðamanna. Tímabundið starfsleyfi vegna Þorrablóts í Brúarási 8.2.2014. Leyfi útgefið 13.1.2014.
n) Skúli Björnsson, kt. 070456-0019, f.h. Þorrablótsnefndar Valla-og Skóga kt. 610105-1490 tímabundið starfsleyfi fyrir Þorrablót á Iðavöllum þann 8.2.2014. Leyfi útgefið 13.1.2014.
o) Fljótsdalshérað kt. 481004-3220. Starfsleyfi vegna almenningssalerna í Selskógi. Leyfið útgefið 13.1.2014.
p) Kjöt og fiskbúð Austurlands ehf., kt. 6908131060. Starfsleyfi vegna matvöruverslunar með vinnslu að Kaupvangi 23b. Starfsleyfi útgefið 14.1.2014. 710 Seyðisfjörður
q) Bókakaffi Hlöðum ehf., starfsleyfi vegna sölu á veitingum í Söluskálanum Dalbotnar að Hafnargötu 2. Starfsleyfi útgefið 4.12.2013.
r) Lyfja hf., kt. 531095-2279. Breyting á starfsleyfi Lyfju hf. Austurvegi 19 á Seyðisfirði. Felldur er niður sá hluti fyrra leyfis sem náði til sölu efna- og snyrtivöru skv. efnalögum nr. 61/2013, en eftir stendur starfsleyfi vegna sölu innpakkaðar matvæla, s.s. fæðubótarefna. Leyfi útgefið 1.1.2014.
s) Þórhallur Jónasson, kt. 170951-4929. Tímabundið starfsleyfi f.h. Þorrablótsnefndar Seyðisfjarðar vegna Þorrablóts 25.1.2014, haldið í Íþróttahúsinu Seyðisfirði. Leyfið útgefið 2.1.2014. 730 Fjarðabyggð – Reyðarfjörður
t) Hildibrand slf., kt. 431012-0490. Tímabundið starfsleyfi vegna veitingasölu í Félagslundi 22.11.-22.12.2013. Leyfi útgefið 14.11.2013.
u) Gámaþjónusta Austurlands – Sjónarás ehf., kt. 670502-3680. Breyting á starfsleyfi fyrir starfsemi fyrirtækisins, móttöku á flokkuðum úrgangi til endurvinnslu, að Hafnargötu 6, 730 Reyðarfjörður. Leyfi útgefið 27.11.2013.
v) Lyfja hf., kt. 531095-2279. Breyting á starfsleyfi Lyfju hf. Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Felldur er niður sá hluti fyrra leyfis sem náði til sölu efna- og snyrtivöru skv. efnalögum nr. 61/2013, en eftir stendur starfsleyfi vegna sölu innpakkaðar matvæla, s.s. fæðubótarefna. Leyfi útgefið 1.1.2014.
w) Bakkagerði ehf., kt. 520905-0300. Endurnýjun starfsleyfis vegna sölu á veitingum og gistingu að Vallargerði 9 og vegna sölu á gistingu að Vallargerði 14. Starfsleyfi endurnýjað 13.12.2013.
x) Lára Björnsdóttir kt. 030467-4629, f.h. Þorrablótsnefndar Reyðarfjarðar kt. 480102-3550. Tímabundið starfsleyfi fyrir Þorrablót Reyðarfirði. Haldið í íþróttahúsinu þann 24.1.2014. Leyfið útgefið 2.1.2014. 735 Fjarðabyggð – Eskifjörður
y) Suðurverk hf., kt.520885-0219. Starfsleyfi fyrir starfsmannabúðir og mötuneyti við Dalbraut í tengslum vinnu við Norðfjarðargöng. Leyfi útgefið 18.12.2013.
z) Lyfja hf., kt. 531095-2279. Breyting á starfsleyfi Lyfju hf. Strandgötu 31 á Eskifirði. Felldur er niður sá hluti fyrra leyfis sem náði til sölu efna- og snyrtivöru skv. efnalögum nr. 61/2013, en eftir stendur starfsleyfi vegna sölu innpakkaðar matvæla, s.s. fæðubótarefna. Leyfi útgefið 1.1.2014.
aa) Gunnhildur Ósk Sæbjörnsdóttir, kt. 080768-4519, f.h. Þorrablótsnefndar Eskifjarðar kt. 530195-2959. Tímabundið starfsleyfi fyrir Þorrablót Eskfirðinga haldið í Valhöll þann 25.1.2014. Leyfið útgefið 9.1.2014.
bb) Byggingafélag Bjartsýnismanna ehf., kt. 611005-0670. Nýtt starfsleyfi fyrir Dekkjaverkstæði Eskifjarðar, Strandgötu 14. Starfsleyfi útgefið 20.12.2013.
cc) Tanni ferðaþjónusta ehf., kt. 680593-2489. Endurnýjað starfsleyfi fyrir viðgerðaverkstæði fyrir vélar og tæki fyrirtækisins að Strandgötu 14. Starfsleyfi útgefið 20.12.2013. 740 Fjarðabyggð – Norðfjörður
dd) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Breyting á starfsleyfi fyrir Gámavöll í Neskaupstað, þ.e. tilfærsla á staðsetningu frá flugvelli að Naustahvammi 51, 740 Neskaupstaður. Starfsleyfi breytt 4.12.2013.
ee) Haki ehf., kt. 410363-0119. Breytt starfsleyfi fyrir steypustöð og viðgerðaaðstöðu fyrir vélar og tæki í eigu fyrirtækisins að Naustahvammi 56, 740 Neskaupstaður. Starfsleyfi útgefið 20.12.2013.
ff) Lyfja hf., kt. 531095-2279. Breyting á starfsleyfi Lyfju hf. ; Miðstræti 4, Neskaupstað. Felldur er niður sá hluti fyrra leyfis sem náði til sölu efna- og snyrtivöru skv. efnalögum nr. 61/2013, en eftir stendur starfsleyfi vegna sölu innpakkaðar matvæla, s.s. fæðubótarefna. Leyfi útgefið 1.1.2014. 750 Fjarðabyggð-Fáskrúðsfjörður
gg) Fjarðabyggð, kt. 470698-2099. Tímabundið starfsleyfi sem gildir fyrir árin 2013 til 2016, vegna áramótabrennu á Fáskrúðsfirði, við vesturenda gamallar flugbrautar. Leyfi gefið út 5.12.2013 755 Fjarðabyggð – Stövarfjörður
hh) Fjarðabyggð kt. 470698-2099. Tímabundið starfsleyfi sem gildir fyrir árin 2013 til 2016, vegna áramótabrennu á Stöðvarfirði, í Byrgisnesi. Leyfi gefið út 5.12.2013
ii) ES Rekstur, kt. 461207-1970. Fjarðarbraut 17, 755 Stöðvarfirði. Um er að ræða nýtt starfsleyfi fyrir rekstri fiskvinnslu þ.e. flökun og önnur verkun á bolfiski að Bankastræti 1, 755 Stöðvarfirði. Leyfi gefið út 21.11.2013.
jj) Skemmtifélag Stöðvarfjarðar, kt. 620211-2490, „Hjónaballsnefnd“. Tímabundið starfsleyfi sem gildir fyrir hjónaball milli jóla og nýárs ár hvert, árin 2013 til 2016. Leyfi gefið út 17.12.2013
780-785 Hornafjörður
kk) Hjalti Egilsson, kt.110460-2959. Starfsleyfi vegna framleiðslu á repjuolíu að Seljavöllum. Leyfi útgefið 13.11.2013.
ll) Kjarnableikja ehf., kt. 631208-1260. Starfsleyfi vegna mengunarvarna við fiskvinnslu að Hofi í Öræfum. Leyfi útgefið 15.11.2013.
mm) Karlakórinn Jökull, kt. 610280-0139. Tímabundið starfsleyfi fyrir dansleik í Sindrabæ laugardaginn 30.11.2013. Leyfi útgefið 30.11.2013.
nn) Bjarni Hákonarson, kt. 300459-2939. Starfsleyfi vegna matvælaframleiðslu í Dilksnesi. Starfsleyfi útgefið 28.11.2013.
oo) Fallastakkur ehf., kt. 520509-0970. Nýtt starfsleyfi vegna sápugerðar í matarsmiðju Matís á Höfn að Álaleiru 1. Ábyrgðarmaður: Laufey Guðmundsdóttir, kt. 160366-4949. Starfsleyfi útgefið 1.12.2013 með gildistíma til 31.12.2017.
pp) Ríki Vatnajökuls ehf., kt. 420707-2580. Starfsleyfi/tímabundið eftirtalda daga í des. 1., 7., 14. og 21. í Heppu og Nýheimum. Leyfið útgefið 3.12.2013.
rr) Lyfja hf., kt. 531095-2279. Breyting á starfsleyfi Lyfju hf. Hafnarbraut 29 á Höfn. Felldur er niður sá hluti fyrra leyfis sem náði til sölu efna- og snyrtivöru skv. efnalögum nr. 61/2013, en eftir stendur starfsleyfi vegna sölu innpakkaðar matvæla, s.s. fæðubótarefna. Leyfi útgefið 1.1.2014.
ss) Ásgrímur Ingólfsson, kt. 100966-3369. Tímabundið starfsleyfi fh. Þorrablótsnefndar Hornafjarðar vegna Þorrablóts 25.1.2014 í Íþróttahúsinu Heppuskóla Höfn. Leyfið útgefið 7.1.2014.
tt) Sigurður Gunnarsson kt. 090556-5179. Tímabundið starfsleyfi f.h. Góuhófsnefndar vegna Góuhófs í Hofgarði Öræfum. Leyfið útgefið 2.3.2014.
uu) Heppa Matarhöfn ehf., kt. 540212-3090. Breyting á starfsleyfi vegna íbúagistingar í tveimur stúdíóíbúðum á Dalbraut 4 neðri hæð. Ábyrgðarmaður: Vigfús Ásbjörnsson, kt. 020177-4629. Leyfi útgefið 8.1.2014.
vv) Þorrablótsnefnd Suðursv/Mýra, kt. 620103-2330. Tímabundið starfsleyfi vegna þorrablóts þann 8.2.2014 í Félagsheimili Hrollaugsstöðum Hornafirði. Ábyrgðarmaður: Þorsteinn Sigfússon, kt. 120149-4829 Leyfið útgefið þann 8.2.2014.
11 Bókuð útgefin tóbakssöluleyfi
710 Seyðisfjörður
ww) El Grillo ehf., kt.690903-2020. Endurnýjað tóbakssöluleyfi fyrir veitingastaðinn Kaffi Láru. Ábyrgðarmaður: Eyþór Þórisson, kt. 171238-4719. Leyfið útgefið 20.11.2013.
xx) Bókakaffi Hlöðum ehf., Tóbakssöluleyfi í Söluskálanum Dalbotnar að Hafnargötu 2. Ábyrgðarmaður: Gréta Sigurjónsdóttir, kt.191265-5729. Leyfi útgefið 4.12.2013. 780 Höfn Hornafirði
zz) Ingibjörg Ólafsdóttir, kt. 091256-5689. Endurnýjað tóbakssöluleyfi í söluskálanum Hafnarbúðinni, Austurbraut 17. Ábyrgðarmaður er starfsleyfishafi. Leyfið útgefið 11.12.2013.
12. Önnur mál
Árleg Matvælaráðstefna á vegum norrænu ráðherranefndarinnar verður haldin í Gävle í Svíþjóð 26.-28.2. LÞ mun sækja ráðstefnuna.
Boðið er uppá námskeið um eftirlit með efnum og hlutum sem koma í snertingu við matvæli á vegum ráðherranefndarinnar í Lundi í Svíþjóð 17-19.3. og mun HHr sækja það námskeið.
13. Næstu fundir
Næsti fundur ákveðinn sem símfundur þriðjudaginn 25.3.2014 kl. 9:10
Stefnt að snertifundi í viku 19 eða 20, þ.e. í fyrstu eða annarri viku maí.
Fundi slitið kl. 10:30
Fundargerðin færð í tölvu af Helgu Hreinsdóttur og send fundarmönnum í tölvupósti til staðfestingar. Gerðin verður undirrituð á næsta snertifundi.
Valdimar O. Hermannsson
Árni Kristinsson
Sigurlaug Gissurardóttir
Benedikt Jóhannsson
Eiður Ragnarsson
Andrés Skúlason
Ólafur Hr. Sigurðsson
Helga Hreinsdóttir
Leifur Þorkelsson

