Heilbrigðisnefndarmenn:
Stefán Þór Eysteinsson
Jónína Brynjólfsdóttir
Anna Ragnarsdóttir Pedersen
Benedikt Jóhannsson
Helgi Hlynur Ásgrímsson
Kristín Ágústsdóttir
Sandra Konráðsdóttir
Starfsmenn:
Lára Guðmundsdóttir
Dagskrá:
- Bókuð útgefin starfsleyfi 1042
- Skráningarskyldur atvinnurekstur 1043
- Málefni einstakra fyrirtækja / starfsstöðva. 1043
- Loftgæði 1044
- Matarsýking - Lokaskýrsla 1044
- Varnarefnamælingar í grænmeti 1044
- Vinna milli funda 1045
- Önnur mál 1045
1. Bókuð útgefin starfsleyfi
690-691 Vopnafjörður
a) Minjasafnið Burstarfelli, kt. 621004-3010. Starfsleyfi fyrir samkomu hús að Burstarfelli. Starfsleyfi útgefið 24.3.2026.
700-701 Múlaþing – Egilsstaðir
b) Tjarnarland ehf., kt. 620518-3280. Starfsleyfi fyrir gististað að Tjarnarlandi. Starfsleyfi útgefið 5.3.2026.
c) Múlaþing, kt. 660220-1350. Starfsleyfi fyrir samkomuhús að Laufskógum 1. Starfsleyfi útgefið 19.3.2026.
701 Fljótsdalur
d) Hólshýsi ehf. kt. 480118-1970. Breyting á starfsleyfi fyrir gististað að Hólseyri og Dvergabýli 1. Starfsleyfi útgefið 25.3.2026.
765-766 Múlaþing – Djúpivogur
e) Kærleikur ehf., kt. 620223-0770. Starfsleyfi fyrir sölu á gistingu í gistiskála og vatnveitu að Karlsstöðum. Starfsleyfi útgefið 11.2.2026.
f) Hamingja ehf., kt. 510325-1410. Starfsleyfi fyrir litla matvælavinnslu að Karlsstöðum. Starfsleyfi útgefið 11.2.2026.
g) Steinar Resort ehf. , kt. 601216-1240. Starfsleyfi fyrir gististað að Krossi. Starfsleyfi útgefið 23.2.2026.
780-781 Höfn
h) Kolbrún Eydís Ottósdóttir, kt. 230768-5609. Starfsleyfi fyrir sölu á gistingu og vatnsveitu að Borgarbrekku, Hlíð/Lóð 2. Starfsleyfi útgefið 19.2.2026.
i) S&L veitingar ehf., kt. 471125-0240. Starfsleyfi fyrir veitingastað að Hafnarbraut 4. Starfsleyfi útgefið 26.2.2026.
j) Ljósdís ehf., kt. 560126-0260. Starfsleyfi fyrir bakarí að Hafnarbraut 34. Leyfi útgefið 12.3.2026.
k) Háfjall ehf., kt. 530513-0410. Starfsleyfi fyrir gististað og litla vatnsveitu að Dynjanda. Starfsleyfi útgefið 17.3.2026.
l) Lyfja hf., kt. 531095-2279. Starfsleyfi fyrir apótek að Litlubrú 1. Starfsleyfi útgefið 26.3.2026.
m) Mikael ehf., kt. 620997-3079. Starfsleyfi fyrir gististað að Vesturbraut 6. Starfsleyfi útgefið 8.4.2026.
Heilbrigðisnefnd staðfestir útgáfu allra ofangreindra starfsleyfa skv. lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
2. Skráningarskyldur atvinnurekstur
710 Múlaþing - Seyðisfjörður
a) Himnasmiðir ehf, kt. 681125-0270. Skráning vegna niðurrifs mannvirkja að Hafnargötu 42b. Skráning staðfest þann 5.3.2026
700 Múlaþing – Egilsstöðum
b) HJH ehf., kt. 540607-0870. Skráning fyrir niðurrifi á hveitisílói við Lagarfell 4. Skráning staðfest 19.3.2026.
740 Fjarðabyggð - Neskaupstaður
c) Björgunarsveitin Gerpir, kt. 550579-0499. Skráning vegna flugeldasýningar í Oddskarði um páskana, 4.4.2026. Skráning staðfest 24.2.2026.
Heilbrigðisnefnd staðfestir skráningu á ofangreindu skv. reglugerð nr. 830/2022 um skráningaskyldan atvinnurekstur.
3. Málefni einstakra fyrirtækja / starfsstöðva.
3.1 Mógli ehf.
Á 188. fundi heilbrigðisnefndar Austurlands var tekin ákvörðun um að Heilbrigðisnefnd myndi hreinsa olíumengaðan jarðveg við Strandgötu 59 og Strandgötu 61 á Eskifirði. Nefndin taldi fullreynt að ná fram úrbótum á svæðinu með beitingu þvingunarúrræða og að ekki væri ásættanlegt fyrir íbúa að bíða lengur með úrbætur. Hreinsun er lokið á svæðinu.
Heilbrigðisnefnd Austurlands staðfestir að hreinsun á olíumenguðum jarðvegi við Strandgötu 59 og 61 á Eskifirði hafi farið fram á vegum nefndarinnar í samræmi við ákvörðun á 188. fundi hennar.
Heilbrigðisnefnd felur framkvæmdastjóra að innheimta hreinsunarkostnað af Mógli ehf. í samræmi við fyrri bókanir nefndarinnar.
3.2 Tjaldsvæðið Egilsstöðum
Lagt er fram erindi frá HJH ehf. sem gerir kröfu um að Heilbrigðisnefnd Austurlands beiti þvingunarúrræðum og stöðvi starfsemi Austurfarar ehf. vegna tjaldsvæði á Egilsstöðum sem er utan lóðamarka við Kaupvang 17.
Heilbrigðisnefnd bendir á að tillaga starfsleyfis Austurfarar ehf. fyrir tjaldsvæði við Kaupvang 17 og nærliggjandi svæði er í auglýsingu sbr. 9.gr. í reglugerð nr. 903/2024 um hollustuhætti m.s.br. á vefsíðu HAUST. Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillögur heilbrigðisnefndar innan fjögurra vikna frá auglýsingu. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 13.4. nk.
4. Loftgæði
Fyrirspurn barst HAUST um að taka það til skoðunar að setja upp loftgæðamæli við leikskólann Skógarland sem stendur við Fagradalsbraut á Egilsstöðum. Almennt eru loftgæði á Egilsstöðum góð en aðstæður geta skapast þar sem loftgæði minnka. Engar loftgæðamælingar eru framkvæmdar í þéttbýlinu á Egilsstöðum.
Heilbrigðisnefnd felur starfmönnum að kanna möguleika á uppsetningu á minni loftgæðastöðva og taka saman kostnað og ávinning af rekstri slíkra stöðva. Málið verður lagt fyrir nefndina að nýju.
5. Matarsýking - Lokaskýrsla
Lögð fram lokaskýrsla frá stýrihópi vegna rannsóknar á matarsýkingu sem kom upp á leikskólanum á Fáskrúðsfirði í janúar 2026. Hópinn skipuðu fulltrúar sóttvarnalæknis, umdæmislæknir sóttvarna á Austurlandi, Heilbrigðiseftirlit Austurlands, Matvælastofnunar, örverudeildar Matís og Sýkla- og veirufræðideildar Landspítala. Alls voru 15 börn sem veiktust. Einkenni voru uppköst og gengu þau yfir innan sólarhrings.
Út frá niðurstöðum sýnatöku og eftirlitsheimsókna er uppruni hópsýkingarinnar rakinn til framleiðanda vörunnar. Þar sem um var að ræða hitaþolið eiturefni gátu verkferlar við móttöku, geymslu eða upphitun í eldhúsi leikskólans ekki komið í veg fyrir matareitrunina. Atvikið er því ekki rakið til meðhöndlunar eða eldunar matvælanna í eldhúsi leik- og grunnskólans á Fáskrúðsfirði.
Lokaskýrsla stýrihóps lögð fram til kynningar.
6. Varnarefnamælingar í grænmeti
Sýnatökuáætlun MAST 2026 vegna mælinga varnarefnaleifa í matvælum gerir ráð fyrir að taka eigi tvö sýni á útiræktuðu grænmeti á starfssvæði HAUST. Sýni eru tekin skv. kröfum í reglugerð 672/2010 (EB/396/2005) um hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og samkvæmt reglugerð ESB nr. 601/2021 (innleidd með 340/2022) um samræmda eftirlitsáætlun til þess að tryggja að farið sé að ákvæðum um hámarksgildi varnarefnaleifa og meta þau áhrif sem neytendur verða fyrir af völdum varnarefnaleifa í og á matvælum úr jurta- og dýraríkinu.
Heilbrigðisnefnd samþykkir að HAUST taki sýni í samræmi við sýnatökuáætlun MAST og að embættið greiði fyrir vegna mikils kostnaðar hjá litlum framleiðendum.
7. Vinna milli funda
Umsagnir um veitinga- og gistileyfi
7.1 Langatorfa ehf., kt. 590517-2320. Veitingaleyfi að Svínafelli, 785 Öræfi.
7.2 Kærleikur ehf. kt. 620223-0770. Gistileyfi að Karlsstöðum, 766 Djúpavogi.
7.3 S&L veitingar ehf. kt. 471125-0240. Veitingaleyfi að Hafnarbraut 4, 780 Höfn.
7.4 Hólshýsi ehf. kt. 480118-1970. Gistileyfi að Hólseyri 701 Fljótsdal.
7.5 Mikael ehf. kt. 620997-3079. Gistileyfi að Vesturbraut 6, 780 Höfn.
Umsagnir vegna tækifæris-, og áfengisveitingaleyfi
7.6 Baldur Pálsson, kt. 160749-2379. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna þorrablóts í íþróttahúsinu í Fellabæ. Tímasetning viðburðar 14.3.2026.
7.7 Verkmenntaskóli Austurlands kt. 520286-1369. Tækifærisleyfi vegna árshátíðar VA í Egilsbúð. Tímasetning viðburðar 26.3.2026.
7.8 Menntaskólinn á Egilsstöðum, kt. 610676-0579. Tækifærisleyfi á Aski Taproom. Tímasetning viðburðar 19.3.2026.
7.9 K& veitingar ehf., kt. 620310-0850. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga í íþróttahúsinu á Egilsstöðum. Tímasetning viðburðar 11.4.2026.
Umsagnir vegna skipulags-, byggingar- og umhverfismála
7.10 Aðaluppdrættir fyrir íbúðir, Lagarbraut 4, 700 Egilsstaðir.
7.11 Aðaluppdrættir vegna stækkunar á leikskóla, Hammersminni 15b, 765 Djúpavogi.
7.12 Breyting á deiliskipulagi, breytt lóðamörk, Grund á Jökuldal. Mál nr. 1421/2025 á skipulagsgátt.
7.13 Aðaluppdrættir vegna íbúðarhúss, Austurtún 6, 700 Egilsstaðir.
7.14 Aðaluppdrættir vegna stækkunar á grunnskóla Seyðisfjarðar, Skólavegi 1, 710 Seyðisfirði.
7.15 Deiliskipulag fyrir Skaftafell, 785 Öræfi.
8. Önnur mál
8.1 Næsti fundur Heilbrigðisnefndar Austurlands
Fjarfundur 28. maí kl. 8:30
Fundi slitið kl. 9:20
Fundargerð ritaði Lára Guðmundsdóttir
Fundargerð staðfest með rafrænni undirritun nefndarmanna.
