Heilbrigðisnefndarmenn:

Stefán Þór Eysteinsson
Jónína Brynjólfsdóttir
Anna Ragnarsdóttir Pedersen
Benedikt Jóhannsson
Helgi Hlynur Ásgrímsson
Kristín Ágústsdóttir
Sandra Konráðsdóttir                                                                                                  

Dagskrá:

1.  Breytingar á heilbrigðiseftirliti – Uppsagnir starfsmanna. 1055
2. Önnur mál 1056

 

1.  Breytingar á heilbrigðiseftirliti – Uppsagnir starfsmanna

Á síðasta fundi Heilbrigðisnefndar Austurlands var fjallað um þær ráðstafanir sem nauðsynlegt er að grípa til vegna fyrirhugaðra starfsloka Heilbrigðiseftirlits Austurlands 31. desember 2026. Nefndin fól framkvæmdastjóra, formanni og varaformanni að annast sameiginlega undirbúning og samhæfingu nauðsynlegra ráðstafana vegna starfslokanna.

Formaður heilbrigðisnefndar gerði grein fyrir stöðu mála frá síðasta fundi, meðal annars hvað varðar starfsmannamál og undirbúning að yfirfærslu verkefna til Umhverfis- og orkustofnunar og Stofnunar atvinnuveganna.

Fyrir liggur listi yfir störf hjá Umhverfis- og orkustofnun sem fyrirhugað er að ráða í vegna yfirfærslu verkefna heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Enn hefur þó ekki verið gengið frá ráðningum og liggur því ekki fyrir hvort eða hvaða starfsmönnum Heilbrigðiseftirlits Austurlands verður boðið starf hjá þeim stofnunum sem taka við verkefnunum.

Í ljósi þess að lögbundið hlutverk heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga fellur niður um áramót og með hliðsjón af uppsagnarfresti starfsmanna er nauðsynlegt að taka ákvörðun um uppsagnir fyrir lok september. Nefndin harmar að nauðsynlegt sé að segja starfsfólki upp áður en fyrir liggur endanleg niðurstaða um ráðningar hjá viðtökustofnunum. Brýnt er að óvissu starfsfólks verði eytt eins fljótt og kostur er og að viðtökustofnanir ljúki ráðningarferli sínu án óþarfa tafa.

Jafnframt var farið yfir þau verkefni sem fyrirsjáanlegt er að sinna þurfi eftir 31. desember 2026 vegna endanlegs frágangs á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Austurlands. Þar undir falla meðal annars fjárhagslegt uppgjör, frágangur bókhalds og ársreiknings, greiðsla skuldbindinga vegna starfsemi ársins 2026, frágangur og afhending skjala og gagna og önnur verkefni sem nauðsynleg eru vegna slita starfseminnar. Gert er ráð fyrir að framkvæmdastjóri sinni þessum verkefnum í byrjun árs 2027 og er því ekki tekin ákvörðun um tímasetningu uppsagnar framkvæmdastjóra að svo stöddu.

Með vísan til þeirra lagabreytinga sem taka gildi 1. janúar 2027 og fela í sér að núverandi fyrirkomulag heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga og starfsemi heilbrigðisnefnda verður lagt niður, telur stjórn HAUST nauðsynlegt að þegar verði hafinn undirbúningur að lokum starfsemi Heilbrigðiseftirlits Austurlands í núverandi mynd.

Tryggja þarf að uppsagnir starfsfólks og lok annarra samninga komi til framkvæmda með réttum fyrirvara og í samræmi við gildandi lög, kjarasamninga og ákvæði einstakra ráðningar- og verksamninga.

Með vísan til 9. gr. samþykkta HAUST felur stjórn framkvæmdastjóra að segja öðru starfsfólki Heilbrigðiseftirlits Austurlands upp störfum vegna fyrirhugaðra loka starfseminnar og annast annan nauðsynlegan undirbúning vegna starfsloka starfsfólks. Uppsagnir verði tilkynntar með þeim fyrirvara sem leiðir af viðkomandi kjarasamningum og ráðningarsamningum, þó eigi síðar en 30. september 2026 þar sem sá frestur á við.

Framkvæmdastjóra er falið að annast þau verkefni sem nauðsynleg eru vegna yfirfærslu verkefna, uppgjörs og annars frágangs vegna loka starfsemi Heilbrigðiseftirlits Austurlands.

Heilbrigðisnefnd Austurlands harmar þá óvissu sem starfsfólk hefur búið við vegna breytinganna og telur brýnt að þær ríkisstofnanir sem taka við verkefnum heilbrigðiseftirlitsins ljúki ráðningarferli sínu eins fljótt og kostur er. Nefndin þakkar starfsfólki fyrir fagleg og góð störf í þágu Heilbrigðiseftirlits Austurlands og aðildarsveitarfélaga þess.

2.  Önnur mál

2.1. Næsti fundur Heilbrigðisnefndar Austurlands

Staðfundur á Egilsstöðum 6. október kl. 13:00

Engin önnur mál.

Fundi slitið kl. 09:00

Fundargerð ritaði Stefán Þór Eysteinsson

Fundargerð staðfest með rafrænni undirritun nefndarmanna.

pdfFundargerð á PDF